Tuesday, December 2, 2008

Nú er úti veður vott - verður allt að klessu, - ekki fær hann Grímur gott - að gifta sig í þessu.



Stefan Seeger og rannsóknarhópur hans við háskólann í Zurich segir að efnið sem þeir hafi fundið upp sé algjörlega vatnshelt. Eins og sjá má á myndinni helst vatnsdropinn fyrir utan efnið.
Efnið, sem sagt er vera vatnsheldasta efni sem búið hefur verið til, er gert úr polyester með milljónir af agnarsmáum sílikon filamentum.
Í efninu eru mörg lög af 40 nm breiðum sílikon nanófilamentum sem eru efnislega "vetnishrædd"(ie. hydrophobic). Strúkturinn á efninu gerir það að verkum að það nær ekki að blotna.
Filamentin í efninu gera það að verkum að loft festist á milli þeirra, til að búa til lag af lofti, svipað og skordýr gera til að anda neðansjávar.

Heimildir
Jon Evans. 24. nóv. 2008. NewScientist. http://www.newscientist.com/article/dn16126-nanotech-clothing-fabric-never-gets-wet.html (skoðað 02.12.08)

No comments: