Maður pælir oft í því hvort vetni sé framtíðin, þó svo vísindamönnum hafi tekist að sýna fram á að það sé hægt, þá er vandamálið helst geymslan. Hvernig á að geyma vetni ef ekki undir miklum þrýstingi sem getur skapað hættu.
Eldsneytisdeild Bandaríkjanna segja að til að vera nógu góðar þurfa vetnisgeymslur að geta geymt amk 6 prósent af þyngd sinni í gasformi. Málmhydríð geta bundist vetni en þær hafa aðeins sýnt fram á að geta geymt 2% af þyngd geymslunnar í gasformi. Vonir eru bundnar við búa til atóm-matrix til að auka geymslufærni.
George Froudakis við háskólann í Krít við Grikkland sendi frá sér tilkynningu þar sem tölvumódel sýndi fram á að "lagkaka" af grafín lökum sem tengd eru saman við kolefnis nanórör geti geymt um 6.1% af þyngd sinni í vetni.
Nú hefur prófessor við háskóla í Hollandi hefur tekist að búa til 40-laga strúktúr þar sem grafínlögin eru aðskild með buckyballs(?). Næsta skref verður að setja nanórör í stað boltanna og svo verður að fylla strúktúrinn af vetni til að sjá hvort Froudakis hafi á réttu að standa.
HeimildirHöf óþekktur. 24. nóv. 2008. NewScientist. http://www.newscientist.com/article/mg20026835.600-under-construction-the-fuel-tank-of-the-future-.html (skoðað 02.12.08)
No comments:
Post a Comment