Monday, December 1, 2008

Jet-pack, nýtt met

Eric Scott flaug yfir Royal Gorge í Arkansas, US. Jet-packið sem hann notaði var 130 punda og 800 hestafla skrímsli, hann setti nýtt heimsmet með atvikinu.

Jet Pack er í raun heiti yfir tæki sem notar þrýstikút með gasi sem gerir notandanum kleift að fljúga. Það er svo sem ekkert mjög flókið tæki en það hefur reynst erfitt að yfirstíga staðreyndir sem slíkar eins og þyngdaraflið eða stærð vélarinnar og hversu erfitt er að stýra henni.
Tvær tegundir af mótorum hafa verið notaðar við gerð jet-packa. Þá helst er hydrogen-peroxide mótor notaður. Hydrogen Peroxide er í raun frekar stöðugt gas, en þegar það kemst í tæri við t.d. silfur þá decomposar það og við það eykst rúmmál þess allt að 5k falt. Gallarnir við þessa byggingu mótors er stuttur tími flugs og erfitt er að stjórna fluginu, einnig eru hydrogen peroxide propellant(m.a. silfur) dýrir.
Önnur tegund mótora er turbojet mótorinn, þ.e. vél sem notar kerosín(eldsneyti). Þessar vélar bæði ná meiri hæð og lengri flugtíma, en þær eru flóknar í smíði og mjög dýrar. Aðeins eitt módel var smíðað, The Bell Jet Flying Belt og var flogið 1969 og náði um 45 km/klst hraða en hefði þannig séð getað náð um 135 km/klst hraða. Þó svo fyrsta tilraunin með þennan jetpack hafi tekist þá missti Bandaríkjaher áhugann, eiginlega vegna þess að hann var of flókinn til að viðhalda og of þungur, að lenda með þennan þunga á sér er frekar hættulegt fyrir flugmanninn sjálfan.

Eric Scott átti fyrra metið í JetPack flugi, en hann flaug The Rocketman, Rocketbelt sem var smíðað og hannað af Powerhouse Productions.

Heimildir
Dave Philipps. 26. nóv 2008. Technology News. http://www.technewsworld.com/story/65306.html
http://en.wikipedia.org/wiki/Jet_pack

No comments: