Friday, September 19, 2008

Ný sólarrafhlöðutækni

Davidson Institute for Talent Developement gaf nú á dögunum $25,000 skólastyrk til William Yuan, sjöunda bekking sem þróaði nýja sólarrafhlöðutækni.

Hann hefur verið að vinna að rannsóknum í 2 ár í samstarfi við kennara sína og prófessora við Portland State University’s Center for Nanofabrication and Electron Microscopy.

Hann segir sjálfur að hann hafi byrjað á rannsókninni vegna þess að hann sá tækifæri í þeim, því orka eins og olía, kol og gas eiga einhvern tímann eftir að þorna upp. Hann byrjaði því á verkefninu til að reyna að gera sólarrafhlöður ódýrari og skilvirkari í notkun.

Núverandi sólarrafhlöður eru flatar og geta aðeins tekið inn sýnilegt ljós, þegar Yuan kom upp með leið til að taka inn sýnilegt og UV ljós. Verkefnið hans fókuseraði á það að finna sólarrafhlöður sem tekur inn meira af ljósi og er skilvirkari, þ.e. að reyna að þróa betri nanotube til að umbreyta ljósi í rafmagn á skilvirkari vegu.

Heimildir
Christina Lent. 11/9 2008. ValleyTimes. http://www.beavertonvalleytimes.com/news/story.php?story_id=122109656865633500 (tekið 19.09.08)

No comments: