Friday, September 19, 2008

Ný sólarrafhlöðutækni

Davidson Institute for Talent Developement gaf nú á dögunum $25,000 skólastyrk til William Yuan, sjöunda bekking sem þróaði nýja sólarrafhlöðutækni.

Hann hefur verið að vinna að rannsóknum í 2 ár í samstarfi við kennara sína og prófessora við Portland State University’s Center for Nanofabrication and Electron Microscopy.

Hann segir sjálfur að hann hafi byrjað á rannsókninni vegna þess að hann sá tækifæri í þeim, því orka eins og olía, kol og gas eiga einhvern tímann eftir að þorna upp. Hann byrjaði því á verkefninu til að reyna að gera sólarrafhlöður ódýrari og skilvirkari í notkun.

Núverandi sólarrafhlöður eru flatar og geta aðeins tekið inn sýnilegt ljós, þegar Yuan kom upp með leið til að taka inn sýnilegt og UV ljós. Verkefnið hans fókuseraði á það að finna sólarrafhlöður sem tekur inn meira af ljósi og er skilvirkari, þ.e. að reyna að þróa betri nanotube til að umbreyta ljósi í rafmagn á skilvirkari vegu.

Heimildir
Christina Lent. 11/9 2008. ValleyTimes. http://www.beavertonvalleytimes.com/news/story.php?story_id=122109656865633500 (tekið 19.09.08)

Friday, September 5, 2008

SSD drif á markað

Tæknisvið Buffalo hefur sett á markaðinn SSD drif sem eru á viðráðanlegum verðum. Verðin eru sögð vera um 100 pund fyrir 35GB drifin og um 200 pund fyrir 64GB drifin.

Geta nýju Microstation drifanna eru hlédrægar í samanburði við stóru snúningsdrifin -- 32 GB, 64GB og 100GB.

Þyngd þeirra er um 60g og eru pínulítil, þ.e. 57 x 14 x 89 mm. Sem er í raun lítið miðað við fylgihlutina, USB tengi og kapall til að tengja við tölvuna.

Buffalo segir að ef notaðir eru bestu USB drifin þeirra ná þeir upp í 35GB/s flutningshraða.

Heimildir

John. E Dunn, 03.09.08, Infoworld: http://www.infoworld.com/article/08/09/03/Mobile_users_offered_first_external_SSD_1.html (tekið 05.09.08)